152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[15:56]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég styð að það verði lengdur þingfundur. En ég verð nú að viðurkenna að ég er orðin svolítið abbó. Nú hafa helstu áhrifamenn þjóðarinnar stigið hér upp hver á fætur öðrum og auglýst félagsfundi hjá stjórnarflokkunum. Ég óska eftir því að næst þegar Framsókn heldur félagsfund úti í bæ þá verði hann auglýstur hér í tíu mínútur. [Hlátur í þingsal.] Hvað kostar mínútan hjá fjölmiðlum landsins? Bara endilega, takk.