152. löggjafarþing — 75. fundur,  16. maí 2022.

útlendingar.

595. mál
[20:15]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hver er í raunverulegri þörf fyrir vernd? Hver er í raunverulegri neyð? Ég vil varpa upp þeirri spurningu hvort albanska konan með litla barnið, konan sem var gengin 36 vikur, og margvísleg lög voru brotin við brottvísun hennar, hafi kannski verið í raunverulegri þörf fyrir vernd og umönnun. Við leyfum því kannski bara að liggja í loftinu.