Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 83. fundur,  1. júní 2022.

heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa.

599. mál
[20:04]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa. Með frumvarpinu er kveðið á um nauðsynlegar heimildir fyrir Reykjavíkurborg til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa fyrir börn sem voru reknar af barnaverndarnefnd Reykjavíkur á síðustu öld.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti, annars vegar frá forsætisráðuneytinu og hins vegar fulltrúa frá hópnum Réttlæti. Tvær umsagnir bárust og er greint frá því í nefndaráliti og nefndarálit liggur frammi.

Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram sjónarmið um mikilvægi þess að skoðað verði hver hefðu orðið afdrif þeirra barna sem vistuð voru á vöggustofum, meðan á dvöl þeirra stóð og síðar á lífsleiðinni. Taka megi mið af þeim upplýsingum sem þegar hafa komið fram um málið við vinnu nefndar sem yrði skipuð á vegum Reykjavíkurborgar. Mikilvægt er að fá fram sjónarmið þeirra sem upplifðu aðstæður barna á vöggustofum og eru til frásagnar um þær, m.a. starfsfólks og aðstandenda barnanna. Nefndin telur brýnt að frumvarpið nái fram að ganga svo að hægt verði að hefjast handa við að rannsaka málefni vöggustofa í Reykjavík á síðustu öld.

Með hliðsjón af ábendingum sem komu fram í umsögnum um málið leggur nefndin til breytingu þess efnis að lög um opinber skjalasöfn gildi ekki um aðgang að gögnum nefndarinnar á meðan hún starfar. Þegar nefndin hefur lokið störfum munu upplýsingalög og lög um opinber skjalasöfn gilda um gögn hennar eftir atvikum, sbr. 3. mgr. 1. gr. og 6. gr. frumvarpsins.

Virðulegi forseti. Við meðferð málsins var jafnframt rætt um heimildir frumvarpsins til vinnslu persónuupplýsinga hjá þeirri nefnd sem mun kanna starfsemi vöggustofa. Nefndin bendir á að breytingartillagan skerpir á þessum heimildum þar sem mælt er fyrir um hvernig skuli fara með birtingu upplýsinga sem nefndin aflar. Nefndin undirstrikar að ákvæði stjórnsýslulaga, um þagnarskyldu, tjáningarfrelsi o.fl., gilda um störf nefndarinnar auk grundvallarreglu íslensks stjórnsýsluréttar um meðalhóf.

Leggur nefndin til eina lagatæknilega breytingu sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir hér.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson, Eyjólfur Ármannsson, Jódís Skúladóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Logi Einarsson og Sara Elísa Þórðardóttir. Þess skal einnig getið að Sigurður Páll Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur álitinu.