153. löggjafarþing — 3. fundur,  15. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:20]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Kjarasamningur eins og sá sem var gerður síðast um að hækka laun í krónutölu, um hækkun lægstu taxta í krónutölu, virkar best fyrir þá sem hafa verið að borga lægstu launin. Og lægstu launin í samfélagi okkar hafa verið greidd af sveitarfélögunum, þannig að launakostnaður sveitarfélaga hefur aukist verulega, ekki af því að þau vildu það bara. Hæstv. fjármálaráðherra talaði um þetta í morgun eins og sveitarfélög hefðu hækkað laun um 30% að gamni sínu. En sveitarfélögin standa andspænis verulegum áskorunum. Það er verið að færa leikskólaaldur niður í eitt ár. Málefni fatlaðra eru komin í hnút. Þannig að ég spyr bara: Hvað eiga sveitarfélög að gera annað en að nýta sér það svigrúm sem ríkið, stjórnin sjálf, býr þeim? Eiga sveitarfélögin að segja: Ja, við ætlum að hækka um 2%? Eiga skólamáltíðir að hækka um 2%? Á leikskólinn að hækka um 2% þegar ríkið sjálft tekur meira en það?