leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Er málið alveg eins og ég myndi kjósa að hafa það? Nei, það er kannski ekki alveg þannig. Ég er þó ekki búinn að fastmóta einhverjar sterkar skoðanir á því né vil ég gera neinar grundvallarbreytingar á því. En eins og ég hef sagt þá hefur málið komið hér ítrekað til þingsins og ég var sáttur við það nefndarálit sem ég skrifaði undir af því að ég held að það hafi verið farsæll millivegur sem var farinn þar. Ég held að það sé ágætisskref til að stíga, bara til að uppfæra þá löggjöf sem er í gildi núna og á sér langa sögu. Ég myndi alveg geta staðið áfram við það nefndarálit. Ég verð að upplýsa hv. þingmann um að ég var erlendis á vegum þingsins við önnur þingstörf þegar þetta mál var afgreitt út úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins en eftir því sem best er vitað var gerður almennur fyrirvari við málið, það er ekki ákveðinn eða skriflegur fyrirvari sem við erum með um þetta mál. Ég get í öllu falli vel við unað hvað þetta mál varðar með fyrirvara um þær athugasemdir sem hagaðilar munu gera við það núna, sem eru viðbrögð við því nefndaráliti sem við lögðum fram í vor. Ég áskil mér allan rétt til að taka mark á þeim umsögnum.