153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

öryggis- og varnarmál.

[11:21]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vakti máls á því í störfum þingsins áðan að ég held að við þurfum að fara að horfast í augu við að það hefur ekki verið nóg að gert hérna í því að fylgjast með því sem blasir kannski ekki við svona á yfirborði jarðar. Samspil himintunglanna og þess sem er neðan sjávar er okkur afar mikilvægt í öllu sem heitir gagnaflutningar, fjármálakerfi og almennt innviðakerfi Íslands. Ég held að við þurfum að taka alvarlega þessa áminningu um að ef hægt er að fikta í pípunum hjá gömlu herraþjóðinni neðan sjávar er líka hægt jafn auðveldlega að fikta í pípunum okkar. Við þurfum að hafa einhverja sérfræðinga í því að fylgjast með því sem menn eru að aðhafast. Við erum á fjandvinalista manns sem heitir Valdimar Pútill í Austurvegi og hann svífst einskis. Við verðum bara að horfast í augu við að þetta er gjörbreytt heimsmynd frá því sem hið friðelskandi Ísland hefur talið að gæti nokkurn tímann hent aftur. Við erum komin 100 ár aftur í tímann, grimmdin og villimennskan taumlaus og við varnarlaus þó að vinir okkar í Atlantshafsbandalaginu og víðar vilji okkur vel. Þess vegna segi ég: Eflum það sem heitir eftirlit sérfræðinga, netheimana og aðrar mögulegar leiðir til að fyrirbyggja að pípurnar okkar verið klipptar í sundur og samfélagið lamað á svipstundu. Þetta er í skötulíki hjá okkur, viðurkennum það bara. Ég er margoft búinn að nefna þetta í utanríkismálanefnd og alla vega einu sinni hér áður. Við þurfum að taka þetta alvarlega og það strax.