153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

öryggis- og varnarmál.

[11:23]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland er leiðarljósið í varnar- og öryggismálum. Grundvallarforsenda stefnunnar er að Ísland, sem fámenn eyþjóð sem hefur engan vilja til að ráða yfir her, tryggi öryggi með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana. Hornsteinn öryggis og varnar Íslands er annars vegar aðildin að Atlantshafsbandalaginu, þar sem Ísland var í hópi 12 stofnríkja árið 1949, og hins vegar varnarsamningurinn við Bandaríkin frá árinu 1951.

Árið 2016 áréttuðu varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og utanríkisráðuneyti Íslands viðvarandi skuldbindingar sínar um náið samstarf á sviði varnar- og öryggismála, tvíhliða sem og á vettvangi Atlantshafsbandalagsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna áréttaði einnig skuldbindingu sína sem lýtur að vörnum Íslands í samræmi við varnarsamninginn frá 1951, m.a. með áætlun sem tryggir varnir Íslands með öflugum, breytanlegum úrræðum og liðsafla. Hægt er að taka undir með málshefjanda að staða öryggis- og varnarmála í heiminum sé gjörbreytt. Nú eru athugasemdir og réttmætar spurningar nauðsynlegar í ljósi stöðunnar. Á stjórnvöldum hvers tíma hvílir nauðsyn þess að greina öryggis- og varnarþarfir Íslands í því augnamiði að tryggja hagsmuni og öryggi okkar til lengri tíma. Viðsjárverðir tímar eru komnir til að vera eftir langan frið. Við búum í breyttum heimi. Ég er sammála því að endurmat á varnarstöðu landsins kalli á umræðu, stefnumótun og stjórnsýslu sem snýr að öryggis- og varnarmálum.