153. löggjafarþing — 13. fundur,  12. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

41. mál
[17:57]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Þetta er nokkuð hátíðleg stund fyrir mig því að þetta er í fyrsta sinn sem ég fæ að mæla fyrir frumvarpi sem ég hef sjálf lagt fram, auðvitað með stuðningi fleiri þingmanna Sjálfstæðisflokksins en meðflutningsmenn eru þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason, Guðrún Hafsteinsdóttir og Ásmundur Friðriksson. Ég lagði frumvarpið fram á síðasta vetri en það komst því miður ekki á dagskrá.

Það er viðeigandi að þetta mál verði ákveðin frumraun mín hér því að breytingar á lögum um starfsmannahald ríkisins voru mér ofarlega í huga þegar ég ákvað að gera atlögu að því að ná kjöri til Alþingis eða réttara sagt var munurinn á réttarstöðu fólks á hinum almenna markaði og þeim opinbera mér ofarlega í huga.

Ég starfaði í nokkur ár sem lögmaður á almennum vinnumarkaði áður en ég varð ríkisstarfsmaður. Þar áður hafði ég starfað hjá Reykjavíkurborg svo ég hef ágætisreynslu af samanburðinum, hef komið víða við. Á þeim tíma sem er liðinn frá því að ég hóf störf á almennum vinnumarkaði, fyrir rétt rúmum áratug, hefur staðan gjörbreyst. Frá því að lög um ríkisstarfsmenn voru sett árið 1996 er breytingin enn umfangsmeiri, hvað þá ef við lítum aftur til ársins 1954 þegar lög um ríkisstarfsmenn tóku upphaflega gildi.

Markmið laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins frá árinu 1996 var aukin hagkvæmni í ríkisrekstri og bætt þjónusta hins opinbera. Í greinargerð með frumvarpi til laganna kemur fram gagnrýni á starfsmannahaldi ríkisins, sem er sagt minna á fyrirtæki sem hefði orðið undir í samkeppni á frjálsum markaði. Þar var m.a. lögð áhersla á aukinn sveigjanleika í starfsmannahaldi og að réttarstaða opinberra starfsmanna yrði sem líkust réttarstöðu starfsmanna hjá einkafyrirtækjum.

Virðulegi forseti. Tilgangur þeirra lagabreytinga sem ég mæli hér fyrir er einmitt sá að auka sveigjanleika í starfsmannahaldi ríkisins. En hvað hefur breyst á þessum árum, frá því lögin voru sett árið 1996, sem kallar á þessar breytingar eða hreinlega frá árinu 1954, en umræddar reglur um áminningu og uppsagnir sem frumvarpið tekur til hafa í meginatriðum haldist óbreyttar frá þeim tíma? Starfsmannahald hins opinbera hefur vaxið jafnt og þétt og fjölgun opinberra starfa hefur verið mikil en samkvæmt tölum Hagstofunnar voru launþegar hjá hinu opinbera um þriðjungur af heildarfjölda launafólks í landinu á síðasta ári. Laun opinberra starfsmanna hafa líka hækkað mun hraðar á undanförnum árum en laun á almenna markaðnum. Þar er að verða viðsnúningur frá því sem áður var. Launatengdur kostnaður er um fjórðungur af útgjöldum ríkisins. Það er mikilvægt að þeir fjármunir nýtist sem best og starfsemin sé eins hagkvæm og skilvirk og mögulegt er.

Rökin fyrir réttarverndinni, þessari auknu vernd opinberra starfsmanna, hafa einkum verið þau að gera ríkisstarfsmenn óháða þrýstingi frá valdhöfum hverju sinni, að tryggja að þeir verði ekki fórnarlömb geðþóttaákvarðana og séu jafnvel látnir fjúka fyrir vini og vandamenn. Þessi rök geta ekki átt við um fjölmörg störf, jafnvel meiri hluta starfa innan ríkisgeirans, t.d. innan heilbrigðis- og menntakerfisins. Svo er reyndar hægt að velta því upp í gamni, svo að það þýðist nú örugglega yfir á skrifaðan texta, hvort tölur um fjölda og fjölgun opinberra starfsmanna bendi til þess að það þurfi að láta opinbera starfsmenn fjúka til að koma öðrum að. Við þetta er að bæta að verkefni ríkisins hafa breyst, eru orðin umfangsmeiri og oft og tíðum hliðstæð verkefnum á almennum markaði auk þess sem stofnun umboðsmanns Alþingis og setning stjórnsýslulaga hafa stóraukið starfsöryggi ríkisstarfsmanna.

Þessi umræða hefur verið tekin margoft hér á Alþingi en frumvörp í þessa veru hafa verið lögð hér fram í nokkur skipti. Ríkisendurskoðun hefur sömuleiðis gert athugasemdir við málsmeðferð við uppsagnir ríkisstarfsmanna og lagt til að lögunum verði breytt á þennan hátt. Til að taka þetta saman þá hefur réttarstaða opinberra starfsmanna styrkst og kjör þeirra hafa batnað en samhliða þeirri þróun hefur opinberum starfsmönnum fjölgað mikið. Ferlið sem hér er lagt til að sæti breytingum er bæði þunglamalegt og tímafrekt og getur leitt til þess að starfsmenn sem hafa gerst brotlegir eða eru óhæfir hafi ríkari vernd en til var ætlast.

Svo að ég reki nú stuttlega í hverju breytingartillögur flutningsmanna felast venju samkvæmt þá eru í frumvarpinu lagðar til nokkrar breytingar á starfsmannalögunum, m.a. að felld sé niður sú skylda forstöðumanns að áminna starfsmann með formlegum hætti vegna brots á starfsskyldum hins síðarnefnda eða þegar hann hefur ekki staðið undir þeim kröfum sem leiða af starfi hans. Þá er lögð til breyting til áréttingar á því að unnt sé að setja starfsmann tímabundið í embætti, m.a. vegna skipulagsbreytinga, en samhliða er lögð til sú breyting að í stað eins árs geti setning embættismanns í þeim tilvikum að hámarki varað í sex mánuði enda er almenna reglan sú að auglýsa skuli laus embætti og því ætti undanþágan að vara sem styst.

Virðulegi forseti. Að lokum langar mig að ræða tvennt. Mikill meiri hluti ríkisstarfsmanna eru hæfir starfsmenn sem vinna verkefni sín samviskusamlega í samræmi við gildandi lög og stjórnsýsluhætti. Þessar tilteknu breytingar varðandi áminningarskylduna varða aðeins þá sem gerast brotlegir í starfi eða sinna ekki starfi sínu með fullnægjandi hætti. Þegar svo stendur á gera ákvæði starfsmannalaga ríkinu mjög erfitt fyrir að gera breytingar á starfsmannahaldi. Það sýnir framkvæmdin okkur og notkun þessa tækis.

Mig langar síðan til að leggja áherslu á skilaboð sem hafa vafist fyrir einhverjum. Það verður ekki nógu oft áréttað að það verður auðvitað almenn krafa hér eftir sem áður að málefnaleg sjónarmið liggi til grundvallar starfslokum og lausn frá embætti. Það eru almenn sjónarmið en auk þess tryggja stjórnsýslulög ríkisstarfsmönnum aukna réttarvernd í starfi. Réttaröryggi opinberra starfsmanna í samskiptum við vinnuveitanda sinn verður því áfram meira en það sem launþegar búa almennt við. Frumvarpið boðar ekki breytingar á því, aðeins aukinn sveigjanleika í opinberu starfsmannahaldi og einfaldari reglur við starfslok.

Að lokum hlakka ég til að heyra gagnlegar ábendingar og athugasemdir við málið og ræða það hér við þingmenn. Ég legg til að málið gangi að lokinni 1. umr. til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.