153. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2022.

Fjármögnun heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu.

[11:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mig langar til að lesa upp úr pistli Sigurveigar Margrétar Stefánsdóttur sem hún setti á fésbókarsíðu sína en þar segir hún m.a.:

„Að ætla að verða læknir er ákvörðun sem tekin er með einlægt markmið að bæta heilsu fólks. Síðan verður maður t.d. heimilislæknir og þá skyndilega að ótrúlega miklu leyti umsjónarmaður vottorða, niðurgreiðslna, fjárhagsstuðnings og tilvísana.“

Ég þarf að afla mér læknisvottorðs vegna máls sem ég er að stússast í og ég fæ ekki tíma fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær vikur, vegna einhvers sem ætti að vera hægt að biðja um með því að ýta á takka á Ísland.is sem veitir aðgang að þeim upplýsingum sem maður þarf að fá úr sjúkraskrá. En það er ekki hægt. Við ætluðum að reyna að redda þessu hratt og fórum á Læknavaktina. Það var ekki hægt heldur. Þau hafa ekki þann aðgang að fletta upp í sjúkraskrá. Okkur var vísað út aftur, fengum sem betur fer endurgreitt. Það er gjörsamlega fáránlegt hvernig læknar eru settir í þá stöðu að vera ekki að lækna heldur að vera umsjónarmenn þess og passa upp á fjárhag fólks, vera í einhvers konar hliðvörslu fyrir fjárhag fólks sem getur ekki unnið. Þetta þarf að breytast miklu fyrr en við ákveðum það að heilsugæslan sé einkavædd eða opinber. Við þurfum að passa upp á það að læknar séu að lækna fólk en séu ekki í skriffinnsku alla daga fram og til baka sem gerir það að verkum að við þurfum að bíða í mánuð eftir að fá tíma til að fá þá lækningu sem við þurfum. En kerfið er stíflað af því að læknar eru að skrifa upp á pappír daginn út og inn, sannfæra Tryggingastofnun um að fólk með hálsáverka verði með þá næstu tvö árin, sannfæra hana um að varanleg örorka sé enn þá varanleg þremur árum seinna. Það er svo margt í þessu kerfi sem er gjörsamlega galið (Forseti hringir.) og það að setja lækna í það að vera skriffinnskubírókratar er fyrsta atriðið sem við ættum að henda út (Forseti hringir.) áður en við förum að hugsa um eitthvert fjármögnunarmódel fyrir einkaaðila.