153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

Samstarfssjóður háskóla og fjarnám.

255. mál
[17:52]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það er rétt, sem hv. þingmaður kemur inn á, að tækifærin eru gríðarleg og það er ekki að ástæðulausu að þessar áherslur eru settar inn. Við getum tekið dæmi, af því að hv. þingmaður nefnir það sérstaklega, að þessar áherslur spila rosalega vel saman, ekki síst hvað varðar íslensku og fjarnám. Ég hef heyrt sögur þess efnis í fjölmiðlum að fólk hafi ekki aðgengi að íslenskukennslu. Það eru gríðarleg tækifæri til að nýta stafræna tækni til að veita aðgengi að íslenskunámi um allt land. En varðandi samstarf við fleiri aðila þá eru líka tækifæri til þess hjá skólunum, ef um er að ræða tvo eða fleiri skóla, að taka fleiri að borðinu í þessu samstarfi. Það er til að mynda til umræðu að heilbrigðisráðuneytið komi til móts við styrki sem fara sérstaklega í færnibúðir og eru í samstarfi við heilbrigðisstofnanir, þar sem heilbrigðisstofnanir koma inn og eru aðilar að samstarfi sem verið er að fara í, að heilbrigðisráðuneytið komi þá á móti með ákveðinn stuðning við samstarfssjóðinn sem beint er sérstaklega til háskólanna tveggja. En við höfum líka bætt við einu áherslumáli sérstaklega varðandi erlenda háskóla og alþjóðastarf sem var ekki auglýst í fyrstu en er nú inni sem sérstök áhersla. Það verður auglýst opið til umsóknar í sjóðinn á allra næstu dögum. Þetta var mestmegnis auglýst gagnvart háskólum landsins, þar sem þeir þurfa að sækja um í sjóðinn, en ég veit að áhugi hjá fólki innan háskólasamfélagsins er ekki síðri og allir rektorar finna að hugmyndir eru að koma innan úr háskólasamfélaginu, frá starfsfólki skólanna, meira að segja frá nemendum, um það hvað þau telja að háskólinn eigi að sækja um og jafnvel tilbúnar hugmyndir. Það er þá hlutverk rektoranna að sækja síðan um í sjóðinn á grundvelli þeirra hugmynda og forgangsraða hvaða hugmyndir eru komnar lengst til að sækja um á þessu ári og koma svo með aðrar hugmyndir strax á næsta ári.

Takk fyrir að vekja athygli á samstarfssjóðnum. Ég held að við eigum að halda þessari umræðu á lofti um tækifærin sem í þessu felast.