félagafrelsi á vinnumarkaði.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir andsvarið. Nú er ég ekki heldur með ákvæðið beint fyrir framan mig, en það er samt nokkuð skýrt að engan megi þvinga í félag eða til að gerast aðili að félagi. Nú man ég ekki nákvæmlega hvernig þetta er orðað. Síðan segir „nema almannahagsmunir krefjist þess“ eða „til þess að geta starfað“ eða eitthvað slíkt. Hins vegar er það nokkuð ljóst að stéttarfélög geta starfað þrátt fyrir þessi atriði sem um er að ræða og gera þessa aðild í raun að de facto skyldu, það myndi geta átt sér stað eins og Norðurlöndin fúnkera. Ef Norðurlöndunum tekst að gera þetta með þessum hætti þá ætti okkur að takast það líka. Það hefur verið talað um það í samhengi við þetta neikvæða félagafrelsi að þessi undanþága frá því sé í raun að það sé ekki hægt að segja sig úr samfélaginu. Þú getur ekki sleppt því að borga skatta. Þú getur ekki sleppt því að taka þátt í því sem samfélagið skilgreinir sem algerlega nauðsynlegt. Hér erum við þá að segja að þetta sé eitt af þeim atriðum sem hægt er að finna annan flöt á en að skylda alla til að greiða í stéttarfélag sem býður upp á alls konar eitthvað annað en bara t.d. varðandi kjarasamningsgerð eða annað og það sé ósanngjarnt að kveða á um skyldu um slíkt.