153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:58]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svo að því sé haldið til haga, þá hljómar stjórnarskrárákvæðið svona:

„Engan má skylda til aðildar að félagi. Með lögum má þó kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmæltu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra.“

Hér er orðið almannahagsmunir mjög mikilvægt. Það sem núverandi fyrirkomulag hefur tryggt er þessi metaðild að stéttarfélögum. Það eru ákveðin almannagæði sem felast í þessari metaðild sem verkalýðshreyfingar annars staðar, m.a. annars staðar á Norðurlöndunum, öfunda okkur af. Eins og hér hefur komið fram í dag var þetta stjórnarskrárákvæði sérstaklega smíðað með það fyrir augum að raska ekki sátt á vinnumarkaði um það hvernig þessum hlutum er hagað hér á landi. Mér finnst það stórpólitísk tíðindi að Sjálfstæðismenn vilji kollvarpa þessari sátt og þessu fyrirkomulagi sem hefur reynst okkur svo ofboðslega vel.