Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

Rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands.

[11:30]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Hér í þessum sal er ansi margt sem við getum sett á dagskrá og rætt um. Við getum skipst á skoðunum, við getum verið sammála og oft og tíðum erum við einnig líka ósammála en það er afar mikilvægt að umræðan sé byggð á staðreyndum og að umræðan hæfi þinginu hverju sinni. Það er mitt mat að það fari ekki vel á því að alþingismenn tjái sig á þessum vettvangi um mál sem eru í rannsókn og byggi málflutning sinn m.a. á upplýsingum fjölmiðla þar sem önnur gögn sem tengjast málinu eru hreinlega ekki opinber. Þar af leiðandi á ég persónulega erfitt með að taka þátt í umræðunni vegna þess að þetta mál og allt sem snýr að því er enn í rannsókn hjá héraðssaksóknara þar sem það á heima. Ef almennt á að ræða um fjármögnun varðandi efnahagsbrot og skattalagabrot þá tel ég það vera efni í aðra umræðu en ég hef fulla trú á því að héraðssaksóknari sé að vanda vel til verka í jafn umfangsmiklu máli og hér er um að ræða. Hæstv. fjármálaráðherra hefur staðfest hér áður í þinginu að fé hafi verið aukið til embættisins auk þess sem hæstv. dómsmálaráðherra kom inn á það í máli sínu áðan að um er að ræða fullmannað rannsóknarteymi og ekki er hægt að sjá að fjármögnun hamli rannsókn málsins. Ég er fullviss um að íslensk stjórnvöld sem og embætti héraðssaksóknara vilji ljúka þessu máli sem fyrst. Það vill enginn hafa mál sem þetta hangandi yfir sér í langan tíma, alveg sama hvort um er að ræða sakborninga eða aðra í þessu máli.

Virðulegi forseti. Það sætir furðu að við séum yfir höfuð að ræða þetta mál hér í dag. Leyfum frekar þeim sem samkvæmt lögum er falið að rannsaka þetta mál og dómstólum landsins að dæma ef til þess kemur.