Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

Rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands.

[11:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Rannsókn á Samherjamálinu er í farvegi hjá héraðssaksóknara og það er að mínu mati sannarlega engin ástæða til að ætla að sá farvegur sé ekki eins og hann á að vera og vonandi lýkur þeirri rannsókn fljótlega. En að því sögðu þá er það svo að hér er um að ræða risavaxið spillingarmál, líklega það stærsta einstaka í Íslandssögunni. Það er svolítið sérstakt að það hafi ekki verið gefið neitt upp í ferlinu um stöðu mála, þ.e. hvar málið er statt, hvernig miðar o.s.frv. vegna þess að slík upplýsingagjöf er sannarlega ekki brot á neinum reglum sem varða rannsókn mála né heldur neitt óeðlilegt. Þögnin getur orðið hins vegar svo ærandi að hún ein og sér verður óeðlileg.

Síðan ríkir reyndar þögn um hina ótrúlegustu þætti þessa máls. Málshefjandi spyr af hverju ráðherra dómsmála sat ekki umbeðinn fund með namibískri sendinefnd sem átti erindi hingað til lands til að ræða við rannsakendur og ráðamenn og hæstv. ráðherra hefur svo sem gert grein fyrir því hér í pontu í þessari umræðu. Það er ekkert óalgengt að ráðherrar, eins og annað fólk, séu uppteknir þegar óskað er eftir fundi með skömmum fyrirvara. En það er hins vegar sem betur fer ekki algengt að í kjölfarið hefjist atburðarás eins og sú sem fjölmiðlar lýstu í kjölfar þess að aðstoðarmaður ráðherra fundaði með sendinefnd ásamt lykilfólki úr ráðuneytinu. Til að fá botn í þá atburðarás, sem var býsna farsakennd, a.m.k. í hvert skipti sem aðstoðarmaðurinn fékk orðið, þá sendi þingmaður Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, inn skriflega fyrirspurn til dómsmálaráðherra fyrir fimm vikum síðan og bað ráðherra um að gera grein fyrir innihaldi þessa fundar og einmitt fá upplýsingar um það á hvaða forsendum aðstoðarmaðurinn taldi sig geta neitað að tjá sig um fundinn. (Forseti hringir.) Hér hefur hæstv. ráðherra lýst því yfir að það hafi verið gert vegna almannahagsmuna sem er býsna áhugavert. (Forseti hringir.) En við sjáum hvað setur vegna þess að við bíðum enn þá eftir skriflegu svari og vonandi verður það eitthvað ítarlegra.