Rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands.
Forseti. Ég ætla ekki að endurtaka upphafið að minni ræðu hérna áðan en hv. þingmenn, sem saka mig um að hafa bein eða óbein afskipti af sakamálarannsókn ættu bara að lesa hana á vef Alþingis. Það er nú bara mjög skýrt þar að málið snýst alls ekki um það. Það snýst um þær pólitísku ákvarðanir sem hafa gert það að verkum að skattrannsóknir á Íslandi eru ekki á þeim stað sem þær ættu að vera á fyrir land eins og Ísland. Mig langar að vitna í leiðara frá Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans, sem ber heitið „Fullnaðarsigur skattsvikara“. Þar er talað um áhrif þess að sameina skattrannsóknarstjóraembættið við Skattinn, leggja í raun það mikilvæga embætti niður, og að færa rannsóknir á alvarlegum skattalagabrotum yfir til héraðssaksóknara. Skattrannsóknarstjóri hafði aðgang að einu stærsta gagnasafni á Íslandi, með leyfi forseta:
„Í því er að finna upplýsingar um laun, staðgreiðslu, launamiða, verktakamiða lögaðila og einstaklinga hér á landi. Þar er líka að finna upplýsingar um allar eignir einstaklinga og lögaðila eins og þær eru um hver áramót.
Í þessu gagnasafni er hægt að fletta upp verðbréfaeign, fasteignum, bílum, bankareikningum bæði á Íslandi og erlendis. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um kaup og sölu allra eigna, þar á meðal fjármálagjörninga. Þar er hægt að fletta upp yfirliti yfir erlendrar greiðslur til landsins og upplýsingum um notkun erlendra kreditkorta hérlendis.“
Svo er hér löng upptalning líka yfir öll önnur gagnasöfn sem skattrannsóknayfirvöld hafa aðgang að. En embætti héraðssaksóknara, eftir þessa tilfærslu á skattrannsóknarstjóra, hefur ekki þennan aðgang og þarf til þess lagaheimild sem hefur ekki verið færð til héraðssaksóknara eftir þessa tilfærslu. Þetta er bara ein af mörgum pólitískum ákvörðunum sem hafa verið teknar sem hafa ekki bara bein óbein heldur bein áhrif á getu embætta á Íslandi til að rannsaka jafn stór og viðamikil og Samherjamálið er.
Ég hlýt auðvitað að minnast á það hvernig ráðamenn á Íslandi, (Forseti hringir.) sér í lagi ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, hafa notað sín embætti til að ráðast að þeim blaðamönnum sem hafa verið að upplýsa um þetta mál (Forseti hringir.) og ég tek undir með hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni: Ég fordæmi það hér með.