Rannsókn á Samherjamálinu og orðspor Íslands.
Virðulegur forseti. Hér er vitnað í þennan vinnuhóp Drago Kos hjá OECD og höfð orð um það hversu fagleg vinnan er innan OECD í þessum málum. Það er ástæða til að vekja athygli á því að þessi háttvirti fulltrúi OECD talar um vandræðagang við rannsókn Namibíumálsins og að það sé að dragast o.s.frv., en hann sá aldrei ástæðu til að setjast niður með héraðssaksóknara, aldrei ástæðu til að spyrja embættið um gang mála, ekki einu sinni þótt þeir sætu saman á fundum annars staðar.
Skattrannsóknin er í sjálfu sér í mjög góðum farvegi. Það er mikið samstarf milli skattyfirvalda og héraðssaksóknara — en skattalagabrot eru mjög oft hluti af skipulagðri glæpastarfsemi, sem ég er að fara að leggja aukna áherslu á eins og ég hef margboðað hér — og mun reyna á þetta samstarf.
Hér er talað um að ekki sé verið að hafa áhrif á málið með umræðu í þingsal. Ég tel það vera vel langt seilst. Í öðru máli, sem er ekki svo langt um liðið að átti sér stað, orðuðu Píratar það þannig að svona samskipti gætu verið á mörkum eftirlitshlutverks ráðherrans og sýndu óeðlileg afskipti af máli sem væri í rannsókn hjá lögreglu. Nú vilja Píratar aftur ganga lengra í þessu máli. Þeir vilja handvelja þetta. Það er auðvitað ógnandi hvernig þeir nálgast þau mál, að ég hafi verið að nýta mér hér einhverja meinta hryðjuverkaárás um mál sem eru auknar heimildir til lögreglu, eins og haldið var fram. Það mál var í samráðsgátt stjórnvalda seinni partinn í vetur þannig að það eru nú ekki meiri tengsl milli þess sem er nýskeð hér í meintu hryðjuverkamáli og þess máls. Það er að koma inn í þingið lítið breytt frá því sem það var í samráðsgáttinni.
Orðspor skiptir öllu máli, já, það er alveg rétt, og það hvernig við höldum á þessum málum gæti fælt erlendar fjárfestingar frá. Það er bara ekkert til í þessum fullyrðingum, að tengja það við þetta mál. Það er mikil eftirspurn eftir erlendri fjárfestingu og allt annað sem liggur til grundvallar þar heldur en slík mál eða eitthvert traust gagnvart ríkinu. Það eru óeðlileg afskipti ef fjármagni er forgangsraðað í þágu einstakra mála. Embættið er vel fjármagnað eins og staðan er. Þeir eru með fullmannaða rannsókn í þessu máli. Samkvæmt upplýsingum frá héraðssaksóknara gengur rannsókn málsins vel (Forseti hringir.) og það er engin ástæða til að efast um að þar sé verið að vinna af fullum heilindum og samkvæmt þeim reglum sem um þetta gilda.