153. löggjafarþing — 24. fundur,  27. okt. 2022.

útlendingar.

382. mál
[14:36]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir ræðuna þar sem hann fór bæði í gegnum ýmis efnisatriði frumvarpsins sem hér er til umfjöllunar og líka pólitíska andrúmsloftið, getum við sagt, sem liggur fyrir okkur öllum núna þegar verið er að leggja fram málið. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður talaði svolítið um það hvað væri að gerast hjá VG í þessu máli og fór í gegnum ýmsar sögulegar staðreyndir í því, til að mynda þá staðreynd að það var gerður fyrirvari við málið á síðasta þingi en ekki núna. Hins vegar eru menn auðvitað svolítið að rýna í orðalag. Það kemur svolítið skýrt fram hjá þeim þingmönnum VG sem hér hafa talað að þeir ræða ekkert sérstaklega mikið eða nákvæmlega um tiltekin efnisatriði en tala bara um að þingflokkurinn hafi ákveðið að það væri heppilegt að málið kæmi hér til þinglegrar meðferðar. Við höfum áður verið að ræða það hér í þessum ræðustól að það virðist vera sem svo að í þingflokki VG þyki það hreint ekkert verra að það séu aðrir en þingmenn VG sem þurfi að taka efnislega afstöðu til málsins í því skyni að stöðva það. Það eru ansi margir þingmenn hér í þessum sal sem eru þeirrar skoðunar að það sé verið að nota andrúmsloft þar sem við erum upptekin af því að það sé álag á innviðum út af fólki frá Úkraínu og Venesúela, til að herða að réttindum annarra og þannig sé hinn pólitíski leikur á bak við þetta mál.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, af því hann fór yfir það sem snýr að VG, og ég tek það reyndar fram að ég heyrði ekki alveg blábyrjunina á ræðunni, kannski nefndi hann það þar og þá bara áréttar hann það hér: Úr því að þetta er málið með þingflokk VG, hvað finnst hv. þingmanni um það að hæstv. dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp (Forseti hringir.) og það kemur fram hjá þingflokksformanni sama flokks að það sé (Forseti hringir.) alger einhugur milli þingflokksins og ráðherrans en samt sem áður gera þingmenn fyrirvara (Forseti hringir.) við frumvarp ráðherrans þegar það er lagt fram hér í þinginu?