breytingar á raforkulögum til að tryggja raforkuöryggi almennings o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvar sitt sem var að mörgu leyti ágætt. Þessi tillaga ber þess merki, og maður sér það í strax í upphafi greinargerðarinnar, að þar er reynt að leggja til nauðsynlegar breytingar á lögum og reglum sem hafa ákveðin markmið sem eru talin upp í 5 töluliðum. En þetta verður allt að gerast innan þriðja orkupakkans, innan ramma orkustefnu ESB, og það tel ég vera mjög slæmt. Ég held að markmiðin séu mjög göfug og að mörgu leyti mjög góð. En ég tel að sérstaklega 5. töluliðurinn og hinir líka takmarkist algerlega. Orkumarkaður Evrópusambandsins er meingallaður, það er gjaldþrota kerfi. Þar er seljandi að selja seljanda, heildsali að selja smásala sem selur til neytanda og vörunnar er neytt. Þetta byggir á sömu prinsippum og meginreglum og á verðbréfamarkaði þar sem seljandi kaupir verðbréf, geymir þau og getur selt þau aftur. Enginn sem notar raforku getur selt hana aftur. Því er algjörlega klárt mál að þetta er að öllu leyti fyrir heildsalana og seljendurna, þetta er frjáls markaður og ég tel að öll forgangsröðun til neytandans sem er ekki á markaðnum gangi ekki upp. Ég tel að ef smásalinn kaupir af heildsala þá verði hann að selja það til orkuskipta, þannig að ég tel að þessi töluliður muni ekki ganga upp varðandi orkuskipti. Það verður fróðlegt að sjá það og vert að reyna það.
Það var gott að heyra afstöðu hv. þingmanns til upprunavottorðanna. Ég tel að þetta sé ólöglegt þar sem Ísland er ekki tengt raforkukerfi Evrópusambandsins. Við erum að hjálpa Evrópusambandinu að menga. Fyrirtæki úti í Evrópu kaupa rafmagn framleitt með kolum og kjarnorku segja síðan: Nei, við erum að nota íslenska orku hérna. Það er stóra málið. Varðandi þessar skilgreiningar á alþjónustu þá hefði ég gjarnan viljað sjá íslenska skilgreiningu og að við myndum nota okkar eigið fullveldi í þessu. Telur hv. þingmaður ekki rétt að við eigum að ganga a.m.k. eins langt og við getum, vonandi að segja upp þriðja orkupakkanum, til að stuðla að orkuskiptum í raforkuframleiðslu á Íslandi, nota raforkuframleiðsluna og jafnvel ganga lengra en ESB?