Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:10]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að gefa mér tækifæri til að skýra þetta enn frekar. Tökum sem dæmi þá öryrkja sem eru á framfærsluuppbót skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð. Þeir öryrkjar sem hafa framfærsluuppbót og reyna fyrir sér á vinnumarkaði verða fyrir skerðingu sem nemur 65% af atvinnutekjum þeirra. Fyrir hverjar 100 kr. sem þeir afla sér skerðist framfærsluuppbótin um 65 kr., það er mikill peningur. Það er það sem kemur í veg fyrir viljann til að vinna. Það er það sem takmarkar frelsi einstaklingsins til að fara að vinna. Það fer enginn að vinna til að láta skerða innkomu sína. Þú færð kannski hundraðkall frá vinnuveitandanum og hundraðkall í framfærsluuppbót en hún er þá skert, það skerðist þeim megin. Það skiptir ekki máli hvaðan hundraðkallinn kemur, þetta er skerðing. Við erum að tala um sjálfstæðan rétt skv. 76. gr., rétt sem öllum er tryggður í lögum, m.a. rétt til aðstoðar vegna örorku og örbirgðar. Þetta er sjálfstæður réttur, hann er ekki skilyrtur neinu öðru. Ef þú getur farið að vinna þá verður þú fyrir því í ofanálag að tekjur þínar eru skertar. Við í Flokki fólksins leggjum til að fólk geti reynt fyrir sér í tvö ár án þess að það komi nýtt örorkumat. Og ég tek dæmi: Á 40. bls. í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar er talað um hindranir til atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega. Hindrun til atvinnuþátttöku er skerðing á atvinnufrelsi, ég get ekki séð það öðruvísi. Ég skoða þetta líka út frá þeirra eigin orðum, ég hef mína eigin skoðun en meiri hlutinn lítur svo á að skerðingar vegna atvinnutekna séu hindrun á atvinnuþátttöku. Ef þú hindrar atvinnuþátttöku ertu að hindra atvinnufrelsi. Það er líka sjálfstæður réttur, það er ekki skilyrtur réttur. Ef það á að koma á hindrun til atvinnuþátttöku verður það að vera á grundvelli almannahagsmuna. Þeir almannahagsmunir eru ekki til staðar, eru ekki fyrir hendi.