Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:35]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir góða ræðu. Hann stiklaði á mörgum stórum hlutum sem ég hef mjög mikinn áhuga á og ekki bara áhuga heldur finnst mér þeir rosalega mikilvægir fyrir komandi kynslóðir þannig að mín kynslóð þurfi ekki að moka upp skítinn eftir núverandi ráðamenn, afsakið, forseti. En svona er þetta bara. Hann talaði um alþjóðaskuldbindingar og kom inn á orkuskiptin og það er margt sem við þurfum að gera til þess að stuðla að góðum orkuskiptum og skilvirkum orkuskiptum sem eru fram undan. Eins og hv. þingmaður segir er ríkisstjórnin með mjög metnaðarfull markmið en eins og staðan er þá erum við, til að nefna dæmi, ég gæti haldið áfram endalaust, rosalega léleg í að innleiða tilskipanir frá Evrópuþinginu og ráðinu. Ein tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá árinu 2012 er um orkunýtni, setur reglur og skyldur til að ná orkunýtnimarkmiðum Evrópusambandsins 2020 og svo 2020–2030. Þetta er metnaðarfull tilskipun og mér skilst að hin löndin í kringum okkur séu duglegri við að innleiða svona tilskipanir. Eins og staðan er akkúrat núna, forseti, þá erum við ekki með neitt lögfest markmið, sýnist mér, um losun gróðurhúsalofttegunda. Ég held að við séum með einhver markmið í einhverjum sáttmála sem er bara flott og gott og gilt en það er samt ekki lögfest. Með því að innleiða þessa tilskipun þá held ég að það gæti stuðlað að hraðari, betri og skilvirkari orkuskiptum. Ég vildi því bara spyrja hv. þingmann hvort hann væri sammála mér um að við ættum að vera duglegri í að innleiða tilskipanir sem koma frá Evrópuráðinu og Evrópuþinginu til þess að geta hafist handa við orkuskipti.