Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 46. fundur,  10. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:49]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er kannski smá misskilningur hjá mér en gæti verið þannig að ef á að halda áfram að selja upprunavottun þá þurfi að hækka verð um 15–20% af því að þessar upprunavottanir hafa verið að hækka svo mikið í verði. Ég veit ekki alveg hvort fýsísk tenging þurfi nauðsynlega að fylgja til að hægt sé að selja upprunavottunina. Við getum talað um þráðlausa tengingu á einhvern hátt en ég held að það sé ekki alveg nauðsyn.

Hv. þingmaður talaði mikið um loftslagsmarkmiðin sem Ísland er búið að setja og að ríkisstjórnin sé búin að setja sér sjálfstætt markmið um 55% samdrátt í losun. Nú erum við með vef sem heitir orkuskiptaspá.is frá Orkustofnun sjálfri, sem fer yfir breytingu á losun koltvísýrings vegna innanlandsnotkunar miðað við 2005. Þar segir að á árinu 2030, þegar á að vera búið að ná 55% samdrætti, verðum við í 32,7%. Það er ekki fyrr en 2038 sem við eigum að vera búin að ná 55% samdrætti. Þetta er núverandi staða og ef það á að ná þessum markmiðum þá munum við þurfa að skrúfa ansi hratt í öllu sem viðkemur losun á koltvísýringi til að ná þessum markmiðum um 55% fyrir árið 2030. Þetta er jafnvel lágspá miðað við hvernig ferðamannatölur hafa breyst mun hraðar en búist var við, sem leiðir til enn þá fleiri bílaleigubíla sem hafa mun neikvæðari áhrif á þessa spá en gert er ráð fyrir núna. Til þess að ná einhverri brú þar á milli þyrfti bílaleiguflotinn að hella sér út í rafbíla, eiginlega bara á næsta ári. Þar er vandinn í hnotskurn.