félagsleg aðstoð.
Virðulegi forseti. Hér er verið að mæla fyrir mjög góðu máli, framlengingu varðandi greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris úr 18 mánuðum í 36 mánuði og möguleikum á framlengingu upp í 24 mánuði. Samanlagt geta þetta þá orðið allt að fimm ár í staðinn fyrir þrjú ár. Þarna er verið að vinna með fólki og reyna að styðja það aftur til mögulegrar atvinnuþátttöku. Ég tel það vera mjög brýnt að reyna eins og hægt er miðað við getu hvers að styðja við hann og hjálpa til við að auka virkni og gefast ekki upp of snemma. Auðvitað kemur að þeim tímapunkti, eins og hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson nefndi, að það er útséð með að viðkomandi komist aftur út á vinnumarkaðinn og þá má það ekki vera allt of flókið ferli fyrir einstakling að ljúka því máli og það þarf að vera hægt að ljúka því á einum stað. Það hafa ekki allir bakland og stuðning til þess að halda utan um það kerfi sem getur alveg verið flókið og það getur verið flókið að komast til læknis og allt sem þessu fylgir. Þess vegna þarf þetta að vera sem aðgengilegast og stuðningur frá fagaðilum svo að það gerist ekki, eins og oft hefur gerst, að einhverjir detti milli skips og bryggju í svona ferli. Fólk hefur ekki allt bakland og fólk er kannski statt á þeim stað í lífinu að það lendir í alls konar hremmingum, eins og allir vita sem þekkja eitthvað til þessara mála. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að hjálpa fólki til að það geti nýtt sér þennan endurhæfingarlífeyri, en það verður þá að vera mikið samspil virkni og möguleika og það þarf að nýta þann tíma vel og skoða hvaða möguleikar eru þar fyrir hendi. Þó að ekki nema hluti af þeim hópi komist aftur með einhverjum hætti, í hlutastarf eða annað, út á vinnumarkaðinn þá skiptir það miklu máli. En auðvitað má þetta ekki verða til þess að hamla því að þeir sem sannarlega munu ekki geta komist aftur út á vinnumarkaðinn og eru með varanlega örorku fái þá viðurkenningu, eins og ferlið á að vera og á að virka.
Ég held að þetta sé mál sem við getum öll sammælst um að sé gott skref í rétta átt meðfram því máli sem var mælt fyrir áðan. Ég treysti því að þessi heildarendurskoðun gangi hratt og örugglega fyrir sig og þar verði tekið tillit til þeirra þátta sem hafa verið nefndir hér af hálfu alþingismanna og til þess sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt. Hann hefur verið ötull málsvari þessa fólks og ber að þakka honum fyrir það.