Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

Störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Mig langar í dag undir störfum þingsins að hrósa Útlendingastofnun. Það er ekki gert mikið af því hér úr þessum ræðustól. Á heimasíðu stofnunarinnar birtist í gær frétt undir fyrirsögninni Tölum um fólk á flótta. Þarna gerir stofnunin tilraun til að færa í mannamál þá umræðu sem skapast hefur, mögulega viðbrögð vegna, jóladagatals RÚV, eins og segir í fréttinni, með leyfi forseta:

„Í tilefni þess að jóladagatal RÚV í ár fjallar meðal annars um flóttafólk verða á aðventunni birtar upplýsingar tengdar efni þáttanna á heimasíðu Útlendingastofnunar. Upplýsingarnar eru fyrst og fremst ætlaðar börnum og er textanum því ætlað að vera auðlesinn og auðskilinn.“

Það má segja að þetta hafi tekist býsna vel þar sem meira að segja ég skildi þennan texta ágætlega og ég bara hvet fólk til að fara inn á heimasíðu Útlendingastofnunar og skoða þessa frétt. Þarna er hver þáttur tekinn fyrir og reynt að setja fram á mannamáli hvaða sjónarmið eru uppi þannig að auðskiljanlegt sé fyrir ungt fólk. Ég held að þetta sé til mikilla bóta og til fyrirmyndar. Ég vil ítreka það að ég hrósa Útlendingastofnun fyrir þetta framtak því eins og við vitum í þessum þingsal þá kom til hvassra orðaskipta vegna barnaefnis Ríkisútvarpsins í síðustu viku. Það getur ekki verið að það sé hlutverk Ríkisútvarpsins að mála opinbera embættismenn upp sem einhverjar grýlur þegar stofnun viðkomandi aðila er eingöngu að framfylgja lögum sem við á Alþingi höfum samþykkt. Það er þá okkar hér að gera breytingar ef tilefni er til. En bara aftur: Ég hrósa Útlendingastofnun fyrir þetta framtak og hvet fólk, sérstaklega foreldra ungra barna og unglinga, til að fara og kynna sér þetta efni. Þetta er fyrsta frétt á heimasíðu stofnunarinnar. Þetta er til mikillar fyrirmyndar og það gætu fleiri stofnanir tekið þetta sér til fyrirmyndar.