Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

úrvinnslugjald.

572. mál
[12:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Þetta eru miklar bækur sem hér liggja fyrir. En mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í 3. gr. sem fjallar um heyrúlluplast. „Á heyrúlluplast sem flokkast undir neðangreint tollskrárnúmer skal leggja úrvinnslugjald sem hér segir …“ Síðan kemur talnarunan, 82 kr. á kíló. Þetta er hartnær þreföldun þessa gjalds frá fyrri stöðu. Ég ætlaði að skoða rökstuðning fyrir málinu í greinargerð frumvarpsins og þar segir um 3. gr., með leyfi forseta: „Lagt er til að viðaukinn verði uppfærður til að samræmi sé á milli allra viðauka um útlit og framsetningu.“ Hvað í veröldinni þýðir þetta í þessu samhengi? Það hljóta að vera einhver mistök að hér sé verið að leggja til hartnær þreföldun úrvinnslugjalds á heyrúlluplasti og útskýringin í greinargerð sé bara einhver della. Getur hæstv. ráðherra hjálpa mér að skilja hvað hér er á ferðinni? Svona fljótt á litið virðist það vera viðbótarkostnaður á meðalsauðfjárbúi um 150.000 kr. á ári og er þá búið að ná til baka drjúgum hluta þess stuðnings sem bændur fengu hér fyrir nokkrum mánuðum síðan í tengslum við gríðarlega útgjaldaaukningu í tengslum við áburðarkaup. En þessi 3. gr. er alger furða ef við horfum til greinargerðar.