úrvinnslugjald.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að leiðrétta þingmanninn örlítið vegna þess að nýsköpunarfyrirtækið í úrgangsmeðhöndlun í Hveragerði heitir Pure North en ég held að hann hafi sagt (JFM: Iceland Pure.) — já, eitthvað annað. (Gripið fram í.) Út af þessu höfum við þingmálið íslensku vegna þess að við ruglumst í þessum erlendu nöfnum eins og enginn sé morgundagurinn. (JFM: Pure North er rétt hjá þér.) En til þess að slík nýsköpun eigi grundvöll — og hún er augljóslega af hinu góða — til þess að fólk finni einhverjar nýjar leiðir til að koma úrganginum okkar í verð og aftur inn í hringrásina þurfum við að hafa efnahagslegan hvata. Þetta frumvarp er náttúrlega hluti af þeirri vegferð að gjaldtaka á vöru sem einhvern tíma verður úrgangur sé á þann hátt að þegar það skilar sér sem úrgangur á endurvinnslustöð sé skynsamlegt að gera eitthvað með það frekar en að urða bara. Hér erum við einmitt að stíga þau skref sem hv. þingmaður kallar eftir, held ég.