Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

fjárframlög til fjölmiðla.

[15:03]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég vildi gera hér að umtalsefni, áður en við höldum inn í þinghaldið í dag, það sem fram kemur í fjölmiðlum í dag. Það er um þessar sérstöku 100 milljónir sem komnar eru í fjárlög til eins fjölmiðils, N4, samkvæmt sérstakri beiðni þar um og verið er að afgreiða fram hjá þessum almenna potti sem við erum að búa til fyrir fjölmiðla til að efla rekstrarumhverfi þeirra. Ég hef skilið viðleitni þingsins og hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra þannig að við séum að reyna að búa þannig um hnútana að við séum að koma svona kannski aðeins faglegra skipulagi á það hvernig við ætlum að styrkja rekstrarumhverfi fjölmiðla og koma okkur úr þeirri stöðu að vera að taka tillit til einstakra fjárbeiðna. Svo allt í einu erum við núna með 100 millj. kr. sem nánast eru eyrnamerktar einum fjölmiðli umfram það sem er í pottinum sjálfum. Þar af leiðandi er niðurstaðan þá sú að það eru mun meiri fjármunir að renna til þessa eina miðils en nokkurs annars, sem hlýtur að vera ákveðin skekkja þegar horft er til stærðar einstakra fjölmiðlasamsteypa á markaðnum. (Forseti hringir.) Mér finnst þetta ekki í lagi. Ég hélt að við værum að reyna að koma okkur út úr þessum vinnubrögðum (Forseti hringir.) og mér finnst þessi ráðstöfun gera lítið úr þeirri vinnu sem hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra hefur þó verið að reyna að koma í gang (Forseti hringir.) með því að hafa styrki og aðferðir til þess að styrkja rekstrargrunn fjölmiðla í heild sinni með aðeins gagnlegri hætti heldur en verið hefur í gegnum tíðina.