Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

fjárframlög til fjölmiðla.

[15:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Þetta varðar vissulega fundarstjórn forseta af því að í áliti meiri hlutans, sem er þingskjal sem er dálítið á ábyrgð þingforseta, stendur, í skýringum við breytingartillögur á gjaldahlið, að gerð sé tillaga um 100 millj. kr. tímabundið framlag til stuðnings við einkarekna fjölmiðla. Þetta er það sem ég myndi halda að allir þingmenn væru að greiða atkvæði um en annars staðar í meirihlutaálitinu er síðan líka bætt við að þetta sé vegna, eins og þar segir:

„… reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð.“ Þetta misræmi er það sem við erum að kvarta undan að sé í áliti meiri hlutans og þess vegna varðar þetta fundarstjórn forseta.