fjárframlög til fjölmiðla.
Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með málshefjanda. Þetta er algerlega ótækt. Vegna þess að orðið armslengd hefur verið mjög notað hér í þingsal þá var það virðingarvert þegar tekin var ákvörðun um að hafa sérstaka úthlutunarnefnd til að ráðherra væri ekki, úr eigin skúffu, að dreifa fjármunum til frjálsra fjölmiðla. Þetta er það sem við verðum að viðhafa í lýðræðisríki. Það sem hefur gerst núna er að einhver póstur virðist hafa borist formanni hv. fjárlaganefndar um beinan fjárstuðning sem er miklu hærri en hæsti styrkur sem er veittur til frjálsra fjölmiðla, hærri en stærstu fjölmiðlafyrirtækin eru að fá. Það er alveg óskiljanlegt að þetta sé tekið algerlega úr þessu faglega ferli þar sem eru þrír nefndarmenn í þessari úthlutunarnefnd sem fást við þetta ásamt fjölmiðlanefnd (Forseti hringir.) sem tekur við umsóknum og greiðir þar úr upplýsingum. (Forseti hringir.) Það er alveg ferlegt að þetta skuli vera afgreitt með þessum hætti hér rétt fyrir jól.