Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

532. mál
[15:20]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að festa þurfi í sessi framtíðarfyrirkomulag NPA-þjónustu. Þrátt fyrir það stefnir í að áfram verði óvissa um framtíð samninganna ef ríkið tekur ekki aukinn þátt í fjármögnun og innleiðingu hennar. Við greiðum hér atkvæði um breytingartillögu sem gerð er grein fyrir í nefndaráliti hv. þingkonu Oddnýjar G. Harðardóttur. Breytingin snýst um að öruggt verði að fjöldi samninga sem tilgreindir eru í frumvarpinu standi ef umsóknir verða ekki færri.