xfjáraukalög 2022.
Hæstv. forseti. Eingreiðsla til öryrkja er aðgerð sem fyrst og fremst hefur verið rökstudd út frá því að endurskoðun á greiðslukerfi örorkulífeyrisþega sé ekki lokið; hún sé því tímabundinn plástur á gallað kerfi. Ég skil auðvitað líkt og önnur hér viljann til þess að mæta hópi þess eldra fólks sem lökust hefur kjörin nú í desember, en sú tillaga sem hv. þm. Inga Sæland hefur ítrekað lagt fram hefur verið óskýr og lagalega ótæk að mínu viti, þó svo að hún hafi vissulega skánað eftir því sem á leið. En burt séð frá þessu þá vara ég við því að setja plástra á ellilífeyriskerfið sem var einfaldað og bætt fyrir nokkrum árum og sem leiddi til kjarabóta fyrir eldra fólk. Tökum heldur utan um viðfangsefnið með þeim hætti að við getum bætt kerfið en ekki plástrað það. Núna er nefnd að störfum undir forystu míns ráðuneytis sem fjallar einmitt um stöðu þess hluta ellilífeyrisþega sem lökust hafa kjörin. Ég tel farsælla að sú nefnd fjalli um það sem hér er til umfjöllunar. Ég vil að lokum minna á að ellilífeyrisþegar fá greidda desemberuppbót þó svo að þessi eingreiðsla komi ekki til. Ég segi nei.