fjáraukalög 2022.
Herra forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um 149 millj. kr. stuðning til hjálparstofnana. Síðast þegar við veittum slíkan stuðning, á síðasta ári, þá var því deilt niður á níu hjálparstofnanir. Í rauninni vitum við öll að hér hafa verið viðtöl við marga aðila sem koma að því að stýra slíkum matargjöfum og stýra slíkum hjálparstofnunum sem öll hafa verið á þá leið að aldrei hafi neyðin verið meiri en akkúrat nú. Þannig að ég hvet ykkur til að segja já vegna þess að við erum jú að tala um mat, virðulegi forseti, fæði, klæði og húsnæði sem við eigum náttúrlega að tryggja öllum líka án nokkurra undantekninga.