Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

fjáraukalög 2022.

409. mál
[15:32]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við erum nú loksins að ljúka atkvæðagreiðslu um þennan fjárauka. Það sem hefur kannski borið hæst hér er einmitt eingreiðsla til öryrkja. Ég trúi því að við fögnum því öll að öryrkjar fái 60.300 kr. eingreiðslu sem verður vonandi komin inn á reikninga þeirra um miðja næstu viku. Það skiptir miklu máli fyrir þennan hóp eins og komið hefur fram og ég er stolt af þeirri ákvörðun sem hér var tekin af okkur öllum.