breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Virðulegi forseti. Bara svona til þess að taka það með í reikninginn, af því að við erum að ræða um það hversu umfangsmikil nefndarálit okkar eru, þá erum við líka með á breytingartillögu minni hlutans sem er með nokkrar konkret tillögur varðandi stóra þætti í þessum tekjubandormi eins og að hækka fjármagnstekjuskatt og svo raunar aðgerð sem ríkisstjórnin er sjálf búin að segjast ætla að grípa til varðandi vaxtabætur og ýmislegt fleira í þeim dúr. Þar fyrir utan bendi ég bara á ákveðin atriði sem mér finnst út af standa. Það breytir því ekki að auðvitað er það meiri hlutinn sem er að taka þessar ákvarðanir með meirihlutavald á bak við sig um hvernig hann ætlar að stýra sköttum og gjöldum í þessu landi næsta árið. Þar var ég bara að benda á þá einföldu staðreynd að það er búið að ákveða að hækka krónutölugjöld um 7,7%, þvert á næstum því allar umsagnir og ráðleggingar gesta sem komu fyrir nefndina. Það eina sem ég var að benda á var að mér hefði þótt það virðingarvottur við alla þessa gesti að minnast a.m.k. á það í álitinu og útskýra hvers vegna ákveðið er að hlusta ekki á öll þessi viðvörunarorð.
Hvað metanbílana varðar þá get ég heils hugar tekið undir það með hv. þingmanni að metanbílarnir hafa að vissu leyti orðið undir og það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að þetta eru ekki hreinorkubílar, en svona að mestu leyti. Það eru reyndar til hreinir metanbílar en þeir eru ekki margir. Það er hins vegar til umtalsvert af metanbílum og þeir eru enn í framleiðslu, sérstaklega í Þýskalandi, og þetta eru töluvert ódýrari bílar en rafmagnsbílar. Mín nálgun er sú að þetta sé innlent eldsneyti sem við höfum til umráða nú og á meðan við erum að bíða eftir því að rafmagnsbílar verði þannig að fólk í lægri tekjutíundunum hafi ráð á þeim, (Forseti hringir.) þeir eru núna mjög dýrir, á meðan við erum að byrja þessa innleiðingu, þá ættum við að bjóða upp á fleiri vistvæna kosti — eins og metanbíla — fyrir lægri tekjutíundirnar.