breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka 7. þm. Norðvest., Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, kærlega fyrir hans ræðu. Mig langar að varpa fram spurningu til hans. Honum var tíðrætt um heyrúlluplast og ég tel mig fyrir hönd meiri hluta nefndarinnar hafa talað mjög skýrt í ræðu minni fyrr í dag með nefndaráliti um að við skiljum mjög áhyggjur bænda. Við fengum umsagnir frá Bændasamtökunum sem og fleirum varðandi þessa hækkun. Það er ánægjulegt að hv. þingmaður hafi tekið mjög vel eftir að það er ákveðinn kostnaðarmunur á milli þess að vinna úr þessu plasti hér á landi og að senda það úr landi. Ég tek heils hugar undir það sem hv. þingmaður tók hér fram, að það væri möguleiki að brenna þetta sorp. Það gera margar þjóðir í kringum okkur. Ég veit ekki betur en að Danir hafi byggt eina fullkomnustu sorpbrennslu út á, held ég bara, Amager í Kaupmannahöfn en það hús er frægt fyrir að vera fallega hannað. Við höfum verið að flytja sorp þangað sem mér finnst arfavitlaus ráðstöfun, að við séum að flytja með kolefnisspori sorp á milli landa. Telur hv. þingmaður eðlilegra að við séum þá að sigla með þetta heyrúlluplast til Svíþjóðar frekar en að vinna það að fullu hér á Íslandi?