breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Frú forseti. Í fyrsta lagi: Hvort snýst þetta um kostnað við að safna plastinu saman, eins og haldið hefur verið fram, eða kostnað við úrvinnslu og af þeim ástæðum séu hendur stjórnvalda að einhverju leyti bundnar? Þetta er fyrra atriðið sem ég hef ekki alveg fengið á hreint þrátt fyrir að hafa fylgst ágætlega með þessari umræðu.
Í öðru lagi: Hvað er gert við þetta plast á Íslandi, fyrir þessar 120 kr. á kílóið? Getur ekki verið að á meðan menn hafa vanrækt að fylgja tillögu Miðflokksmanna um að byggja hér hátæknisorpbrennslu sé þá bara bæði hagkvæmara og umhverfisvænna að nýta þetta sem eldsneyti í Kaupmannahöfn eða í Ósló þar sem er ekki síður merkileg sorpbrennsla? Hvers vegna að hækka álögur á bændur eins mikið og hér er lagt til til þess eins að geta staðið undir 120 kr. kostnaði á kíló fremur en að nýta þetta sem eldsneyti, tiltölulega umhverfisvænt eldsneyti, erlendis og borga þá 38 kr. á kílóið? Hvaða undur gerast hér sem kosta þessar 120 kr. á kílóið?
