Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[18:45]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að fagna breytingartillögu hv. þingmanna og kollega minna í efnahags- og viðskiptanefnd, þeirra Jóhanns Páls Jóhannssonar og Guðrúnar Hafsteinsdóttur, um lækkun á 76% tolli á frönskum kartöflum. Galin prósenta. Þessi fyrrum verndartollur mætti auðvitað gjarnan heyra sögunni til en þetta er jákvætt fyrsta skref. Ég tek heils hugar undir tillöguna og viðleitni flutningsmanna til að lækka tolla og liðka fyrir vöruúrvali. Þetta er til fyrirmyndar.