Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.

442. mál
[20:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Stefán Vagn Stefánsson) (F):

Virðulegur forseti. Fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar mæli ég fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist, nr. 110/2016, sem snertir fyrst og fremst framlengingu á gildistíma laganna.

Samkvæmt lögum nr. 110/2016 er heimilt að greiða útgefendum hljóðrita úr ríkissjóði 25% þess kostnaðar sem fellur til við hljóðritun tónlistar hér á landi að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Lögin tóku gildi 1. janúar 2017 og falla að óbreyttu úr gildi 31. desember nk. Með frumvarpinu er m.a. lagt til að gildistími laganna verði framlengdur um fimm ár en einnig lagðar til aðrar breytingar með það að markmiði að gera endurgreiðslukerfið skilvirkara og afkastameira. Markmið frumvarpsins er þannig að festa endurgreiðslukerfi laganna, sem hingað til hefur gefið góða raun, betur í sessi með framlengingu gildistíma þeirra og styðja þannig enn frekar við innviði þessarar atvinnugreinar. Með framlengingunni er til að mynda áframhaldandi samkeppnishæfni Íslands á þessu sviði tryggð og stuðlað að enn frekari að uppgangi íslensks tónlistariðnaðar.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá STEF sem umsögn um málið hafði borist frá. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Sú umsögn sem barst um frumvarpið var jákvæð og því fagnað að framlengja ætti úrræðið.

Meiri hluti nefndarinnar tekur þannig undir meginmarkmið frumvarpsins um að framlengja gildistíma laganna og telur mikilvægt að efla og styrkja íslenskan tónlistariðnað áfram með því endurgreiðslufyrirkomulagi sem komið var á með lögum nr. 110/2016.

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Haraldur Benediktsson, Hildur Sverrisdóttir, Tómas A. Tómasson og Þórarinn Ingi Pétursson.