Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

Vísinda- og nýsköpunarráð.

188. mál
[21:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir andsvarið. Hann spyr hér út í tilnefningarnefndina. Við ræddum þetta mikið í nefndinni og fengum umsagnir varðandi tilnefningarnefndina. Það voru miklar skoðanir á því hvernig ráðið ætti að vera. Niðurstaðan varð sú að breyta einungis þeim hluta er varðaði Samtök atvinnulífsins en ég vil árétta að þetta er einungis tilnefningarnefndin. Þeir sem eru í tilnefningarnefndinni fá sérfræðiaðstoð frá t.d. Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands. Þar verður horft til þess að í ráðinu verði þeir aðilar sem eru hæfastir á landinu til að gegna þeirri stöðu og vera ráðherranefndinni innan handar. Þetta voru mjög góðar umsagnir sem við fengum og mjög skiljanlegt að fólk vildi vera í tilnefningarnefndinni vegna þess að það taldi þar af leiðandi að það ætti meiri möguleika á því að komast inn í Vísinda- og nýsköpunarráðið. Aftur á móti er alveg möguleiki á því að fólk komist inn í ráðið sjálft af því að það koma tilnefningar til tilnefningarnefndarinnar og þau fá sérfræðiaðstoð við að finna hæfasta fólkið á landinu. Telur t.d. hv. þm. Eyjólf Ármannsson að með því að tilnefningarnefndin sé svona muni fólk ekki eiga möguleika á því að vera í Vísinda- og nýsköpunarráði?