leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég þakka Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Já, ég tel það boðlegt. Þetta nefndarálit sem lagt var fram í fyrra var í nafni okkar, meiri hlutans sem fjallaði um málið og ég bara undirstrika að ég tel það hafa verið það vel unnið að þegar við skilum því inn, það fór reyndar ekki í gegn í þinglokasamningum út af ákveðnum — í þinglokasamningum var það tekið út, og þegar málið er lagt fram aftur, og að teknu tilliti til þeirra breytinga sem voru lagðar til af meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar þá, kom frumvarpið þannig fram og það var í samráðsgátt og annað og það komu miklu færri umsagnir um þetta og miklu jákvæðari núna en í fyrra. Ég tel því að þær breytingar sem voru lagðar til af meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar hafi fallið í góðan jarðveg.