leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni, 8. þm. Norðvest., fyrir ágætisræðu hér áðan. Hann fór prýðilega yfir málið og ég tek undir hans orð. Ef ég skildi hann rétt þá var hann formaður samgöngunefndar á síðasta kjörtímabili og þekkir forsögu málsins. Nú er ég nýr á þingi, kjörinn síðasta haust, og þekki forsöguna ekki nægjanlega vel. Ég veit hins vegar að hæstv. innviðaráðherra var gerður afturreka með frumvarpið á síðasta þingi, síðastliðið vor. Það sem vekur furðu mína er hin þinglega meðferð málsins sem hv. þingmaður kom ágætlega inn á. Mér finnst að verið sé að keyra þetta mál í gegn í skjóli nætur rétt fyrir jól og það er bara algjörlega óboðlegt hv. Alþingi, ég verð bara segja nákvæmlega eins og er. Ég á því miður ekki sæti í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en ef ég skil hv. þingmann rétt þá skil ég það þannig að það séu raunverulega miklar brotalamir á hinni þinglegu meðferð í þessu máli núna. (Gripið fram í: Ha?) Er ég að skilja hv. þingmann rétt? (Gripið fram í: Nei.) Ég er að spyrja spurninga. Ég er ekki að fullyrða neitt, ég meina er það ekki ég sem hef orðið, virðulegur forseti. Það er alger óþarfi að grípa fram í. Ég er að spyrja spurninga. Ef hv. þingmaður gæti aðeins farið betur yfir umsagnarferlið og annað slíkt. Það sem ég skil ekki í þessu máli er það að hér er alveg augljóst mál hver ræður för, það er Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins. Málið er þetta: Athugasemdir ESA fela ekki í sér endanlega niðurstöðu um samræmi Landsréttar og EES-réttar. Það er bara Eftirlitsstofnun. Endanleg niðurstaða er í dómi, EFTA-dómstólnum. (Forseti hringir.) Af hverju í ósköpunum fara stjórnvöld hér ekki með þetta mál fyrir dóm og (Forseti hringir.) standa keik, t.d. á grundvelli nálægðarreglunnar? Hvernig stendur á (Forseti hringir.) því að verið er að fara til ESA? Hv. þingmaður gæti kannski upplýst mig um það.