leigubifreiðaakstur.
Frú forseti. Það er bara beinlínis uppleggið í þessu frumvarpi, það er þjónkun við ESA. Það stendur beinlínis í inngangsorðum frumvarpsins þannig að það gæti ekki verið skýrara. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni að fyrir nýja umhverfis- og samgöngunefnd þá skipta störf fyrri nefndar um málið ósköp litlu máli. Nefndin er öðruvísi mönnuð, annar framsögumaður. Eina raunverulega efnisvinnan hvað málið varðar átti sér stað árið 2020, á síðasta kjörtímabili þegar umhverfis- og samgöngunefnd var öðruvísi mönnuð en núna. Það kemur hér fram, í textanum sem ég las upp úr nefndaráliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar, að gestir voru boðaðir — mig minnir að það hafi verið fyrstu gestir í málinu, fyrir utan eflaust fulltrúa ráðuneytis að fara yfir efnisatriði málsins. Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar boðaði hluta umsagnaraðila á fund nefndarinnar 11. júní 2022 og mig minnir að þinglok hafi verið 16. júní 2022. Það sýnir með hvaða hætti vinnan var á síðasta þingi varðandi þetta mál. Málið var væntanlega tekið út á næsta fundi á eftir og ég held að þá hafi ekki neitt annað verið á dagskrá en bara það tiltekna atriði. Það var því engin efnisleg umræða um málið á síðasta þingi. Þessar grundvallarbreytingar eru lagðar til í nefndaráliti sem ég held að (Forseti hringir.) fæstir hafi lesið, fæstir þingmenn, bara vegna þess að það var ekki búið að semja um að málið færi af dagskrá, það yrði ekki klárað. Það er nú svarið við þessu.