Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[23:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, allt of margir í stjórnkerfinu og allt of margir af kollegum okkar hér á Alþingi eru smeykir og sumir jafnvel logandi hræddir við ESA og Evrópusambandið og það sem þaðan kemur. Þrýstingurinn er mikill, ég skal viðurkenna það. Ég hef upplifað nokkur dæmi um slíkt. Þegar það voru einhverjar reglugerðir sem voru taldar hafa tafist of lengi þá fékk maður að heyra af því, maður fékk heimsóknir í ráðuneytið, tók jafnvel á móti erlendum gestum og fór með í rútu til að skoða Gullfoss og Geysi og þá kom einhver trítlandi og settist við hliðina á manni og spurði: Ætlið þið ekki að fara að innleiða þessa reglugerð? Þá sagði ég: Bíddu, erum við ekki bara að fara að skoða Gullfoss? Jú, en þetta er orðið dálítið seint hjá ykkur og svona. Jafnvel í útlöndum, ég minnist þess í morgunverðinum á hóteli, ég held að þetta hafi verið í Strassborg, þar hafði ég daginn áður komið Norðmönnum til varnar á fundi vegna einhverra EES-reglugerða, þetta varðaði seli, sem Norðmennirnir voru í vandræðum með og ég svona kem þeim til varnar þó að Norðmenn séu ekki alltaf eins duglegir að bakka okkur upp, finnst mér, eins og við þá, og einhver starfsmaður þarna tók eftir þessu og kemur til mín og sest við morgunverðarborðið daginn eftir og spyr svona mjög mjúklega: Hefur þú ekki meðtekið boðskap Evrópusambandsins? Fannst svo undarlegt að ég væri að andmæla innleiðingu á reglugerð. Þetta er hugarfarið og það hefur eflaust mjög mikið um þetta mál að segja en ég held að hitt sé líka mjög sterkt, að einhver hafi selt Framsóknarflokknum þá hugmynd að þetta sé eitt af ráðunum til að verða svalur hérna í Reykjavík. (Gripið fram í.)