Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 49. fundur,  14. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[23:58]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir svarið. Norðmenn hafa sett reglugerð varðandi Björgvin, hún er frá 2016, Forskrift om drosjereglement for Bergen koyreomrSde, Bergen, Sund, Fjell og Askoy kommune, Hordaland. Ég get ekki séð annað en að þar séu verulegar takmarkanir sem varða fjölda leyfa og stöðvarskyldu. Ég er með hérna fyrir framan mig umsögn ASÍ og þar segir t.d., með leyfi forseta:

„Sú fullyrðing í greinargerð að undantekningar frá algjöru frelsi í Noregi eigi við á strjálbýlum svæðum er afskaplega villandi og ljóst að giltu þær undantekningar á Íslandi yrðu samkvæmt þeim settar verulegar skorður á höfuðborgarsvæðinu og á öllum þéttbýlisstöðum á landinu þar sem nú er haldið úti skipulagðri þjónustu leigubifreiða.“

Ég get ekki annað séð en að Ísland, höfuðborgarsvæðið, sé sambærilegt við Björgvin og strjálbýli í Noregi þar sem eru verulegar takmarkanir. Við erum hins vegar að bera saman höfuðborgarsvæðið, virðist vera, við London eða einhverjar stórborgir úti í heimi þar sem Uber er. Þú getur heldur ekki borið saman Ósló og Reykjavík, Ósló er miklu stærri og þéttbýlli. Í fyrsta lagi finnst mér ómögulegt að áætla hvað mun koma út úr þessu frumvarpi og líka þetta með að það sé algjört frelsi í Noregi, það er bara villandi og rangt. Forsendur fyrir frumvarpinu eru ekki réttar. ESA telur líklegt að Ísland gæti verið að brjóta reglur en það er ekki búið að reyna á það og ESA er ekki dómstóll, það er EFTA-dómstóllinn. Ég skil ekki af hverju íslensk stjórnvöld standa ekki í lappirnar og segja: Við ætlum að gera eins og í Björgvin. (Forseti hringir.) Þið getið farið með okkur fyrir dómstól ef þið viljið. (Forseti hringir.) Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á þessu, samanburðinum milli Noregs og Íslands.