Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:04]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil líka mögulega benda á það að ef önnur meira knýjandi mál valda því einhverra hluta vegna að þingmenn og ráðherrar sjá sér ekki fært að taka þátt í umræðunni þá er það fyrir mitt leyti, og mig grunar að ég tali fyrir hönd fleiri þingmanna, alveg skaðlaust að málinu verði frestað og fundinn verði hentugri tími þar sem fleiri geti tjáð sig um þetta mikilvæga mál því að það er alveg ótækt að hæstv. ráðherrar sem hafa óskað eftir að koma að málinu hafi þess ekki tök sökum anna.