Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 56. fundur,  26. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:44]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir það sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson segir hérna og ítreka enn fremur að hvað mig varðar væri það alveg að skaðlausu að ræða þetta frumvarp seinna ef aðrir hv. þingmenn eru ófærir um að mæta til umræðu sökum anna við annað og myndi raunar fagna því.