Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:35]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Í stjórnarskránni segir, með leyfi forseta:

„Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“

Þó virðist, frú forseti, stundum sem þessi sannfæring skipti ansi litlu máli. Stundum greiða hv. þingmenn nefnilega atkvæði með málum sem ganga þvert á yfirlýst gildi þeirra og flokka þeirra. Já, frú forseti, það er eins og sannfæring þingmannsins sé látin víkja fyrir sannfæringu flokksforystunnar. Nú eru t.d. ríkisstjórnarflokkar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að keyra útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra í gegnum þingið og gera það að lögum. Þetta er í fimmta sinn sem frumvarpið er lagt fyrir þingið. Frumvarpið hefur beðið gallsúrt skipbrot ár eftir ár innan þingsins vegna þess hve vanhugsað, mannfjandsamlegt og hroðvirknislega unnið það er í hvert sinn.

Útgáfa þessa löggjafarþings er engin undantekning. Frumvarpið skerðir réttindi fólks á flótta og brýtur gegn lögbundnum réttindum barna. Ekki nóg með það, heldur mun óskilvirkni í kerfinu aukast, umsóknum fjölga, úrvinnslan taka lengri tíma og sífellt fleiri umsækjendur um vernd munu velkjast í kerfinu árum saman. Já, frú forseti, þetta frumvarp er bagalegt á alla kanta.

Frú forseti. Nú virðist þó sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi sagt: Hingað og ekki lengra, við afgreiðum útlendingafrumvarpið eða þetta samstarf er búið. Hvað gera hinir meirihlutaflokkarnir þá? Jú, frú forseti, þeir einfaldlega lúffa. Það er mikilvægara að halda samstarfinu gangandi en að standa fast við sannfæringu og gildi. Ætli hv. þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hafi fundað um málið og komist að þeirri niðurstöðu að innihald frumvarpsins falli að þeirra gildum? Ég veit það ekki, frú forseti, en efast um það. Ég tel heldur líklegra að gildin séu látin víkja fyrir sannfæringunni um að það beri að hlýða flokksforystunni í einu og öllu.

Frú forseti. Þessi grundvallarhugmynd í stjórnarskránni um það að við alþingismenn séum eingöngu bundnir við sannfæringu okkar er látin hverfa út í veður og vind þegar kemur að því að halda völdum. Fyrir síðustu kosningar básúnuðu Vinstri grænir viðstöðulaust að það skipti máli hverjir stjórna. En, frú forseti, það virðist sem kjósendur þeirra hafi keypt köttinn í sekknum. Þeir hefðu allt eins getað kosið Sjálfstæðisflokkinn, svo hverful er sannfæring þingmanna Vinstri grænna. Ég held að það sé kominn tími til að þau skipti um nafn, því að þau eru hvorki vinstri flokkur né grænn flokkur eftir að hafa selt sannfæringu sína í musteri valdsins.