Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 57. fundur,  31. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[23:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil leggja það til, af því að það fer að síga á seinni hlutann, að það fyrsta sem forseti, þá meina ég auðvitað hæstv. forseti Birgir Ármannsson, geri á morgun þegar hann hefur fund sé að kalla málið aftur inn til nefndar. Þetta hefur hann heimild til að gera, þetta getur hann gert og það myndi leysa mörg vandamál, bæði fyrir hann sjálfan en líka fyrir flóttafólk í landinu — og líka vonandi fyrir samvisku einhverra þingmanna í stjórnarmeirihlutanum sem gætu þá aftur fengið tækifæri til að hafa áhrif á þá hrákasmíð sem frumvarpið er. Mögulega væri í þetta skipti alvöruvilji til að gera einhverjar raunhæfar breytingar á frumvarpinu þegar málið færi aftur inn til nefndar, í raun með skipun frá forseta um að taka það aftur til efnislegrar meðferðar.