Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

Störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Á einu ári hefur ofsatrúarmaðurinn í Seðlabankanum aukið mánaðarlegar greiðslur á unga fólkið okkar, sem er að stofna sitt fyrsta heimili, um 130–200.000 kr. á mánuði. Þetta er 1,5–3 milljónir á ári. Þetta er ekkert annað en gróft fjárhagslegt ofbeldi. Með stanslausum hækkunum á stýrivöxtum heldur þessi fjárhagslega hryðjuverkastarfsemi áfram gagnvart ungu fólki sem getur á engan hátt varið sig. Fjárhagslega ofbeldið heldur áfram hjá hryðjuverkabankastjóranum við Arnarhól sem hefur ofsatrú á hækkunum stýrivaxta sem bitna ekki á honum eða hans fólki sem er á ofurlaunum. Nei, þetta fjárhagslega ofbeldi bitnar bara á þeim verst settu sem í góðri trú trúðu honum þegar hann talaði um lágvaxtalandið Ísland sem hann væri búinn að skapa til framtíðar. Það er ljóst að tekjur unga fólksins munu ekki standa undir þessu stýrivaxtaofbeldi lengi. Það getur enginn staðið undir greiðslubyrði sem hefur farið úr 30–40% af ráðstöfunartekjum yfir í 60–70% af þeim eða meira.

En hvar er ríkisstjórnin? Hæstv. forsætisráðherra og fjármálaráðherra sögðust, í óundirbúnum fyrirspurnartíma, hafa fullt af ráðum til að vinna á verðbólgunni. Þau er enn að skoða málið, virða það fyrir sér, hugsa um það en gera svo ekkert og leyfa stýrivaxtaofsatrúarmanninum í Seðlabankanum að fá lausan tauminn í fjárhagslegu stýrivaxtaofbeldi gagnvart heimilum. Ríkisstjórnin situr aðgerðalaus, horfir alvarlegum augum í gaupnir sér og trúir í blindni á trúarbrögð í hagstjórninni og stórfurðulega hugmyndafræði seðlabankastjóra og hans liðs sem sér til þess að stærra og stærra hlutfall heimila á Íslandi nær ekki endum saman.

Þessi blinda trú ríkisstjórnarinnar á hugmyndafræði ofsatrúarstýrivaxtamannsins í Seðlabankanum er stórfurðuleg og er algerlega andstæð heilbrigðum og eðlilegum efasemdum og því í eðli sínu stórhættuleg, hvort sem um er að ræða trúarbrögð, stjórnmálastefnu eða hagstjórn. Þegar þessir valdamiklu einstaklingar misnota völd sín og reyna að troða ofan í almenning sínum eina rétta sannleika eiga auðvitað að kvikna blikkandi viðvörunarljós; þegar gerðir þeirra skilja heimilin, unga fólkið og þá verst settu eftir í rjúkandi rúst. Ofsatrú leiðir okkur í ógöngur.