Störf þingsins.
Virðulegi forseti, hv. þingmenn og kæra þjóð. Mig langar að tala örlítið um fíkniefnavanda og áfangaheimili. Ekki alls fyrir löngu hitti ég einn vin minn sem er búinn að vera án áfengis í tíu ár en viðkomandi hafði farið 40 sinnum á Vog áður en loksins rann af honum. Ég tala um þetta í því sambandi að það er ekki nóg að fólk fari inn á Vog eða inn á geðdeild, eða hvar sem það lætur renna af sér. Það þarf að taka á móti þessu fólki og sjá til þess að það læri að lifa lífinu.
Í síðustu viku kviknaði eldur í húsnæði áfangaheimilisins Betra lífs. Sem betur fer varð ekkert manntjón en í kjölfarið hafa komið fram upplýsingar um brunavarnir sem vekja áhyggjur. Umrætt áfangaheimili hefur verið í fréttum undanfarið, m.a. fyrir háa leigu fyrir herbergi sem varla þykja mannsæmandi, og nú hefur slökkviliðið gert skýrslu um brunavarnir í aðdraganda eldsvoðans. Slökkviliðið bendir á fjölmargt sem þarna var í ólagi: brunaslöngur voru ekki yfirfarnar af fagaðila, húsnæðið var ekki í samræmi við teikningar og búið að fjölga herbergjum, brunaviðvörunarkerfi var óvirkt, nokkrir reykskynjarar voru huldir með límbandi eða hönskum, flóttaleiðir voru ekki í lagi og var m.a. búið að loka fyrir eina fasta flóttaleið. Í þessu húsi búa 30 manns, bæði hælisleitendur og fólk með fíkniefnavanda. Ég get ekki séð hvaða erindi hælisleitendur eiga með fólki með fíkniefnavanda og hvernig það gengur upp — það er bara persónuleg skoðun mín, þetta er tvennt ólíkt.
Engar reglur virðast gilda um áfangaheimili og hver sem er virðist geta opnað slíkt heimili án starfsleyfa eða opinbers eftirlits. Þetta tiltekna húsnæði var rekið af sömu aðilum og höfðu áður þurft að loka áfangaheimili í Kópavogi vegna slæms aðbúnaðar þar. Það er með öllu ólíðandi að stjórnvöld (Forseti hringir.) skuli hunsa algerlega úrræði fyrir fíkla og að áfangaheimili séu rekin nánast í lögleysu. Það þarf að breyta þessu, ekki núna heldur strax.