Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[16:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og sérstaklega fyrir að vekja athygli á þessu umfjöllunarefni. Ég kom nú stuttlega inn á þetta í ræðunni minni og þekki, eins og hv. þingmaður, af því að ég sit sömuleiðis í utanríkismálanefnd, hvernig þessar gerðir renna stundum í gegn hjá okkur. En ég hef einmitt lagt fram skýrslubeiðni á Alþingi til hæstv. umhverfisráðherra um úttekt á þessu apparati, þessu fyrirbæri, svokallaðri gullhúðun. Mér er ekki kunnugt um að eiginleg úttekt hafi verið gerð. Hins vegar, bara af því að það vill svo til að ég er lögfræðingur með framhaldsmenntun í Evrópurétti, þá hef ég rekið mig á þetta í gegnum tíðina og sömuleiðis fengið fjölmargar ábendingar frá mínum kollegum, öðrum lögfræðingum, um nákvæmlega þessi atriði þannig að ég veit að þessi dæmi fyrirfinnast. Ég átta mig ekki alveg á umfangi þeirra en ég held að það sé mjög mikilvægt að við náum utan um það og ég tek undir orð hv. þingmanns um það.